ÓS

Ólafur Sigurðsson og Helga Kjaran

Ýmislegt forvitnilegt um lífið og tilveruna

Ólafur Sigurðsson og Helga Kjaran

Ýmislegt forvitnilegt

Valmynd:
Veftré

Tenglar út og suður:

Fréttir (2022-2023)

Söfnun: Golfvellir
Golf
Húsafellsvöllur, 6. teigur - Júlí 2023
Golf

3. júlí 2023. Nýr völlur í safnið.
Gerðum út sérstakan leiðangur til að spila Húsafellsvöll.

Söfnun: Fuglar
Fuglar
Þórshani (Phalaropus fulicarius) - Bakkatjörn, maí 2023
Fuglar

24. maí 2023. Mynd af nýjum fugli í safnið. Þórshani á Bakkatjörn á Seltjarnarnesi

Tilveran: Jólaannálar
Jól

20. des. 2022. Jólakort/annáll ársins 2022.

Tilveran: Skólar
Golf
12 ára E í Breiðagerðisskóla, 63 árum síðar
Golf

26. ágúst 2022. Skólamyndir.
55 ára stúdentar úr MR komu saman, ári á eftir áætlun. Þar voru mættir níu nemendur úr 12-E í Breiðagerðisskóla.

Söfnun: Fuglar
Fuglar
Súla (Morus bassanus) - Seltjarnarnes, maí 2022
Fuglar

23. maí 2022. Ný mynd í safnið. Súla í bæjarferð á Seltjarnarnesi.

Útivera: Golfferðir
Golf

Vorið 2022. Vorferð í golf til La Sella, Spáni. Blautasta golfferð sögunnar og Covid að auki.

Ættfræði: Niðjatöl

10. febrúar 2022: Ég var að setja tuttugu og fjórar nýjar útgáfur af niðjatölum langafa og langalangafa minna og Helgu á netið.

Eldri fréttir (2020-21)

Söfnun: Eldgos
Eldgos
Geldingadalir, 2. maí 2021
Eldgos

2. maí 2021. Mynd af nýju eldgosi í safnið. Fórum í þyrluflug að eldgosinu á Geldingadölum,

Söfnun: Fuglar
Fuglar
Rúkragi (Philomachus pugnas) - Bakkatjörn, apríl 2021
Fuglar

11. apríl 2021. Mynd af nýjum fugli í safnið. Rúkragi við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi

Söfnun: Fuglar
Fuglar

15. mars 2021. Mynd af nýjum fugli í safnið. Krossnefur í Þrastarbóli í Grímsnesi.

Söfnun: Kirkjusýn
kirkjur

5. febrúar 2020. Ný síða með kirkjusýn frá Hrólfsskálamelnum.

Eldri fréttir (2019)

Ættfræði: Birgir og Sveinbjörg
bk

10. des. 2019. Síða m.a. með myndböndum til minningar um Bauku, tengdamóður mína, f. 8. des. 1919 d. 7. júlí 2004.

Söfnun: Víðförli

+1

27. júlí 2019. Nýtt kort í safnið. Gerður var út sérstakur leiðangur að heiman og austur í Landeyjar til að ná í kortið "C15" og kortin eru nú orðin 302. Ferill úr GPS-tækinu frá þjóðvegi 1 og niðureftir ásamt mynd fylgir að sjálfsögðu. Ekið var heim að bænum Sigluvík og leitað ráða hjá heimamanni um ferð niður á sandinn og varaði hann við fjörukambinum en að öðru leyti ætti það að vera vandræðalalaust. Við ókum hálfa leið en gengum síðustu 2 km í strekkingsvindi undan á leið niðureftir en bálhvasst á móti til baka. Myndin er tekin við hornpunkt reitsins en þaðan voru um 50 m niður að sjó; líklega einn minnsti reiturinn á kortinu.

Söfnun: Fuglar
Fuglar

30. maí 2019: Fuglamyndasöfnun: Brandendurnar á Bakkatjörn eru búnar að koma upp ungum.

Söfnun: Fuglar
Fuglar

21. mars 2019. Fuglamyndasöfnun: Ég frétti af gulöndum fyrir ofan Elliðaársstífluna og náði þessari nýju mynd í safnið.

Ættfræði: Jón Sigurðsson
JS

4. mars 2019. Síða m.a. með minningarmyndbandi um bróður minn Jón Sigurðsson, svæfingarlækni, f. 22. sept. 1947 d. 29. des. 2018.

Eldri fréttir (2016-18)

Harmóníukórinn: Aðventutónleikar 2018
kór

11. desember 2018. Kórinn okkar Helgu, Harmóníukórinn, hélt vel heppnaða aðventutónleika í Árbæjarkirkju. Undirleikari við Aladár Rácz og einleikari var Herdís Pálsdóttir.

Söfnun: Fuglar

+3

11. júlí 2018. Nýjar og betri myndir í safnið. Við Akureyri: Flórgoði, jaðrakan, sandlóa og stormmáfur.

Ættfræði: Hafliði Guðmundsson
Ættfræði

4. maí 2018: Ættfræði; gamlar myndir frá Siglufirði. Frændi Helgu, Sigurjón Vigfússon, sendi okkur tvær myndir frá 1951 í gær.

Um vefinn

15. jan. 2022: Valmyndin efst er nú alltaf sýnileg.

15. mars 2021: Ný síða undir „Söfnun" er „Eldfjöll".

24. feb. 2021: Smá skipulagsbreyting; „Tilveran" er ný í aðalvalmynd. Þangað voru fluttir „Jólaannaálar" og „Heimili". Þá eru þar nýjar síður:„Skólaganga" og „Vinnustaðir".

16. des. 2017: Forsíðan gerð virkari með fréttum og tilvísunum.

12. mars 2017: Smá skipulagsbreyting; „Söfnun" er ný í aðalvalmynd. Þangað eru komnir „Áfangar", „Bílar", „Fuglar", „Golfvellir", „Jólaannaálar" og „Víðförli".

22. feb. 2017: Búinn að bæta við tveimur síðum á aðalvalmynd, bílum og fuglum, sem fyrst og fremst eru fyrir nörda. Undir „Útivera" er komin síðan „Áfangar".

10. okt. 2016: Enn er verið að breyta útliti; nú er verið að gera síðuna símavæna; alltaf eitthvað nýtt.

18. sep. 2016: Þetta smámjakast; nú haustar að og vonandi mun ég birta ýmislegt nýtt og spennandi í vetur.

22. feb. 2016: Ég er enn að lagfæra uppsetningu vefjarins. Ef einhver síða hleypur út undan sér á að duga að endurhlaða, t.d. með F5.

1. jan. 2016: Þá hefur mér loksins tekist að koma því í verk að breyta útliti síðunnar minnar sem ég hef haldið úti í allmörg ár. Fyrst var síðan undirsíða hjá Hönnun hf / VgkHönnun hf / Mannviti hf, sem ég hef unnið hjá alla mína tíð, en síðan undirsíða hjá Símanum. Í fyrra kom ég mér loksins upp eigin léni; www.olisig.is.