Bjarki H. Zóphóníasson
Menntun:
Stúdentspróf frá MR 1966; sem styrkþegi nám í arkitektur við Georgis Institute of Technology, Atlanta, Bandaríkjunum 1966-67.
Nám í arkitektúr og skipulagsfræðum við Eidgenössische Technische Hochschule (ETH) í Zurich 1967-72 með lokaprófi þaðan 1972; þverfaglegt framhaldsnám í aðstoð við þriðja heiminn í sama skóla 1973 – 1974 með starfsnámi í Andra Pradeshfylki á Suður Indlandi 1973 - 1974.
Starfsferill::
Aðstoðarkennari við arkitektúrdeild ETH í Zurich 1974-1978 og Visiting Professor við Virginia Institut and State University, Blacksburgh, Virginia, USA1986-1998.
Vann á ýmsum Arkitektastofum í Sviss á árunum 1978-1986, síðast sem Associate Partner í Burckhardt und Partener Architekten í Basel.
Síðan 1986 rekið eigin teiknistofu í Basel með útibúi í Þýskalandi. Ýmis nefndar- og dómnefndarstörf í Sviss og Þýskalandi.
Stóð fyrir málþingi félags háskólakennara í arkitektúr (EAAE og ASCA) á Íslandi sumarið 1989 þar sem viðfangsefnið var kennslumál í byggingarlist, austan og vestan hafs og hvernig standa skildi að kennslu í þessari grein á Íslandi í framtíðinni.
Stóð fyrir málþingi á vegum Vitra fyrirtækisins og bæjarins Weil am Rhein í apríl 1989 þar sem viðfangsefnið var „Urbanism and industrial culture / Industry and urban culture.
Meðal þáttakenda voru arkitektar sem hannað hafa fyrir Vitra fyrirtækið eins og Frank Gehry, Zaha Hadid. Alexandro Mendini, Niclas Grimshaw.
Ritstörf:
Áhrif umhverfismála við gerð svæðisskipulags og langtímaspáms á Íslandi; (Rannsóknarstyrkur á vegum NATO 1974)
Die Landflucht als Problem der Entwicklungsländer dargestellt am Beispiel Indiens. ETH INDEL 1974
Urbanism and industrial culture / Industry and urban culture, Birkhúser Verlag 1990
Die Nordtangente in Basel als Inkubator der Stadtplanung, Architese 1995:
Helztu verkefni::
Þátttaka í ýmsum samkeppnum m.a í samkeppni um framtíð Þingvalla 1973 í samvinnu við Ásmund Jakobsson og Vikar Pétursson (1. Verðlaun).
Gert ýmis svæðis- og borgarskipulög svo og hönnun fjölda bygginga í Sviss og þýzkalandi, m.a. íbúðar- og skólabyggingar, iðnaðar og skrifstofuhúsnæði etc.
Flest þessara verkefna urðu til upp úr þátttöku í samkeppnum.
Félagsstörf::
Setið í stjórn BDA (Bund deutscher Architekten) 1995 – 2021 og í stjórn VÍS (félags Íslendinga í Sviss) til margra ára.
Áhugamál::
Útivist, ferðalög, ættfræði
Viðurkenningar::
Upptaka í BDA, Bund Deutscher Architekten 1997
Hlaut Hugo Häring verðlaunin
Forfeður:
Nánasta fjölskylda:
Bjarki H. Zópóníasson, f. 13. júní 1946 í Reykjavík, arkitekt í Basel, Sviss (Artal177; Deildætt274; Staðfætt274)
For.; Zóphónías Pálsson, f. 17. apríl 1915 á Hvanneyri, skipulagsstjóri Ríkisins, d. 22.15 mai 2011 (Vertal222; Deil274;Stf 111) og
Lis Nellemann-Pálsson, f. 27. januar 1921 í Álaborg, Danmörku, háskólakennari, d. 29.10.2009.
Systkyni:
Páll H. f. 12. júlí 1942, byggingartæknifræðingur og fyrrverandi bæjarstjóri í Vestmannaeyjum;
Hjalti Nick H. f. 20. febúar 1944, lögfræðingur og fyrrv. skrifstofustjóri í Dómsmálaráðuneytinu;
Margrét f. 13. október, 1953 myndlistakona / myndlistarkennari
~ Kv. Dr. Ulrike Baierl-Zophoniasson, f. 6.september 1948 í Waldkirch im Breisgau, Suður Þýskalandi, rithöfundur og blaðakona.
Börn:
1a Magnús Daníel, f. 23. júní 1975 í Zurich, grafískur hönnuður í Basel;
1b Jakob Nicolai Basil, f. 24. apríl 1980 í Basel, framkvæmdastjóri í Basel, kv. Nettip Chumsuwan f. 5. júlí 1985 í Bangkok, Tælandi, veitingarhússrekandi í Basel;
2a Paul Maximillian f. 24. apríl 2013;
2b Anne Sophie f. 07. Júlí 2017, skólanemendur.
Heimildir:
Samskiptatenglar:
Myndir: